logo-for-printing

Efnahagur Seðlabanka Íslands

13. janúar

Desember 2024

Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 923 ma.kr. í lok desember og lækkuðu um 16,6 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 36,6 ma.kr. og hækkuðu um 530 m.kr. og erlendar eignir námu 886,5 ma.kr. og lækkuðu um 17,2 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 832,6 ma.kr. og lækkuðu um 9,1 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 754,1 ma.kr. og lækkuðu um 8,8 ma.kr. og erlendar skuldir námu 78,5 ma.kr. og lækkuðu um 286 m.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 886,3 ma.kr. og lækkaði um 17,2 ma.kr. í desember.


Næsta birting: 07. febrúar 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is