logo-for-printing

Önnur fjármálafyrirtæki

27. janúar

Desember 2024

Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok desember námu 269,5 ma.kr. og hækkuðu um 3,3 ma.kr. milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 247 ma.kr. og erlendar eignir 22,5 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 6,6 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir lækkuðu um 3,3 ma.kr.

Skuldir annarra fjármálafyrirtækja námu 230,9 ma.kr. og hækkuðu um 2,9 ma.kr. í desember. Þar af námu innlendar skuldir 219,3 ma.kr. og erlendar skuldir 11,5 ma.kr. Eigið fé nam 38,6 ma.kr. í lok desember og hækkaði um 392 m.kr frá fyrri mánuði.


Næsta birting: 27. febrúar 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is