XML gögn
Í töflunni hér að neðan sést hvaða tímaraðir eru birtar á vef Seðlabanka Íslands á XML formi (einnig hægt að sækja sem CSV skjöl). Hægt er að sjá dæmi um XML gögn með því að smella á Skoða í Gögn dálkinum. Hægt er að fá lista yfir hvaða tímaraðir eru í hvaða hópi (e. GroupID) með því að smella á Skoða í dálkinum Tímaraðir. Birt er tafla sem sýnir m.a. númer (e. TimeSeriesID) og tíðni fyrir stakar tímaraðir. Númer stakrar tímaraðar er hægt er að nota til að sækja XML gögn fyrir einungis þá tímaröð.
Möguleg gildi fyrir tíðni tímaraðar eru:
Tíðni | Lýsing |
---|---|
W |
Vikuleg |
A |
Árleg |
D |
Dagleg |
Q |
Ársfjórðungsleg |
M |
Mánaðarleg |
Hægt er að nálgast efni í gegnum færibreytur inn í vefslóðina og eru breyturnar sem er að finna í töflunni hér að neðan í boði.
Breytur | Lýsing | Dæmi |
---|---|---|
DagsFra |
Frá hvaða degi á að leita, skal vera á sniðinu:YYYY-MM-DD Til að fá nýjasta gildi er hægt að nota gildið LATEST Til að fá gildi dagsins í dag er hægt að nota gildið TODAY |
DagsFra=2006-12-01 DagsFra=LATEST DagsFra=TODAY |
DagsTil |
Til hvaða dags á að leita, skal vera á sniðinu: YYYY-MM-DD eða YYYY-MM-DDThh:mm:ss Ef DagsTil er ekki höfð í slóðinni er DagsTil sjálfkrafa stillt á Today. |
DagsTil=2007-01-20 |
GroupID |
Ef leita á eftir tímaröðum í ákveðnum hóp er þessi breyta notuð. Inniheldur númer hóps sem leita á að. Sjá gildi í töflu hér fyrir ofan. Ef þetta er notað skal ekki nota TimeSeriesID. |
GroupID=1 |
TimeSeriesID |
Ef leita á eftir stakri tímaröð er þessi breyta notuð. Inniheldur númer tímaraðar sem leita á að. Sjá gildi í töflu hér fyrir ofan sem er birt þegar smellt er á Skoða í Tímaraðir dálkinum. Ef þetta er notað skal ekki nota GroupID. |
TimeSeriesID=3 |
Type |
Getur verið annað hvort "xml" eða "csv" og segir þar með til um hvort niðurstöðum á að skila sem xml eða csv. |
Type=xml Type=csv |
Dæmi um kall til að fá upplýsingar um opinbert viðmiðunargengi bankans (GroupID=9) á XML formi:
http://www.sedlabanki.is/xmltimeseries/Default.aspx?DagsFra=2014-06-23&DagsTil=2014-06-23T23:59:59&GroupID=9&Type=xml
Dæmi um kall til að fá upplýsingar um staka tímaröð, í þessu tilfelli skráð miðgengi Evru (TimeSeriesID=4064), á XML formi:
http://www.sedlabanki.is/xmltimeseries/Default.aspx?DagsFra=2014-06-23&DagsTil=2014-06-23T23:59:59&TimeSeriesID=4064&Type=xml