Greiðslujöfnuður við útlönd janúar-september 1997
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 1,8 milljarða króna halli
á viðskiptajöfnuði við útlönd á þriðja fjórðungi ársins. Á sama tímabili í fyrra
var hallinn 0,8 milljarðar króna. Fjármagnsútstreymi nettó mældist um 4
milljarðar króna vegna erlendra verðbréfakaupa, bættrar erlendrar stöðu
innlánsstofnana og endurgreiðslna á erlendum lánum ríkissjóðs. Gjaldeyrisforði
Seðlabankans minnkaði um 3,8 milljarða króna og nam 30,3 milljörðum króna í lok
september.
Á fyrstu níu mánuðum ársins var viðskiptahallinn 4,9 milljarðar
króna samanborið við 4,6 milljarða króna halla á sama tímabili í fyrra.
Fjármagnshreyfingar til og frá landinu einkenndust af auknu gjaldeyrisútstreymi
vegna verðbréfakaupa en á móti kom innstreymi af beinni fjárfestingu erlendra
aðila á Íslandi og erlendum lántökum innlánsstofnana. Gjaldeyrisforði
Seðlabankans minnkaði um 0,7 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins.
Taflan sýnir samandregið yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd. Ítarlegar
upplýsingar um greiðslujöfnuðinn verða birtar í desemberhefti Hagtalna
mánaðarins.
Nr. 33/1997
1. desember 1997