logo-for-printing

05. febrúar 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok janúar 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 1,1 milljarð króna í janúar og nam í lok mánaðarins 28,6 milljörðum króna (jafnvirði 411 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Erlendar skammtímaskuldir bankans námu 2,5 milljörðum í lok janúar og höfðu lækkað um 1,4 milljarða króna í mánuðinum. Langtímaskuldir lækkuðu um 1,9 milljarða króna og námu 3,2 milljörðum króna í mánaðarlok.
 Á gjaldeyrismarkaði námu bókfærð gjaldeyriskaup Seðlabankans í janúar 3,3 milljörðum króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í mánuðinum um 0,4%.
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst um 1,1 milljarð króna í janúar og er þá miðað við markaðsverð. Mestu munar að ríkisvíxlaeignin jókst um tæplega 1 milljarð króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,6 milljarða króna í janúar og námu 18 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir minnkuðu um 1,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 6 milljörðum króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,2 milljarða króna og voru neikvæðar um 5 milljarða króna í lok janúar, sem þýðir að innstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í bankanum námu hærri fjárhæð en kröfur hans á móti. 
Grunnfé bankans hækkaði um 0,4 milljarða króna í mánuðinum og nam 21 milljarði króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 9 /1999
5. febrúar 1999

Til baka