Breytingar á útgáfumálum Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands mun á næstu mánuðum koma nýrri skipan á útgáfu rita
bankans. Síðasta tölublað Hagtalna mánaðarins, sem bankinn hefur gefið út í
aldarfjórðung, kemur út í dag. Economic Statistics, sem ársfjórðungslega hefur
birt haggögn og fréttir af íslensku efnahagslífi á ensku, kom út í síðasta sinn
í ágúst sl. Ný rit á íslensku og ensku auk töflusafns á heimasíðu bankans leysa
eldri ritin af hólmi.
Upp úr miðjum október næstkomandi er áformað að
Seðlabankinn hefji útgáfu talnaefnis á veraldarvefnum (www.sedlabanki.is). Þar munu vikulega
birtast nýjar tölfræðilegar upplýsingar. Þeir sem þess óska geta gerst
áskrifendur að fjölritaðri mánaðarlegri útgáfu af talnaefninu gegn greiðslu
áskriftargjalds. Fyrir þá sem hafa greiðan aðgang að veraldarvefnum verður hins
vegar handhægara og ódýrara að nálgast töflusafnið á heimasíðu bankans.
Í
nóvember næstkomandi mun Seðlabankinn hefja útgáfu nýs ársfjórðungsrits sem koma
mun út því sem næst samtímis á íslensku og ensku. Áskrifendur Hagtalna
mánaðarins munu sjálfkrafa fá fyrsta ársfjórðungsritið sent sér að
kostnaðarlausu, en áskriftargjald verður innheimt frá og með áramótum, eins og
nánar verður tilkynnt um í fyrsta tölublaði ritsins. Hið nýja rit verður að
sjálfsögðu einnig aðgengilegt á vefsetri bankans án endurgjalds og fyrr en hin
prentaða útgáfa.
Tilgangur ofangreindra breytinga er að skapa öflugri
vettvang fyrir Seðlabankann til þess að gera grein fyrir stefnu sinni og miðla
upplýsingum til almennings. Breytingarnar munu gera bankanum kleift að koma til
móts við kröfur um gagnsæ vinnubrögð við mótun peningastefnunnar og tímanlega
miðlun upplýsinga.
Áskriftarsími Seðlabanka Íslands er 569-9785.
Nánari
upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands, Már Guðmundsson
aðalhagfræðingur bankans varðandi ársfjórðungsrit og Sveinn E. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri tölfræðisviðs bankans varðandi útgáfu töflusafns, í síma
569-9600.
Nr. 62/1999
1. október 1999