Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok október 1999 og til samanburðar í lok desember 1998
ásamt breytingum í október og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans dróst saman um 0,6 milljarða króna í október og nam í lok
mánaðarins 34,1 milljarði króna (jafnvirði 479 milljóna bandaríkjadala á gengi í
mánaðarlok). Frá ársbyrjun hafði forðinn styrkst um 4,4 milljarða króna. Í
september sl. styrktist gjaldeyrisforðinn vegna tímabundinna erlendra
lánahreyfinga ríkissjóðs og gætti áhrifa þess í stöðu forðans í lok mánaðarins
(sbr. frétt bankans nr. 64/1999). Svipaðra áhrifa gætti í lok
október.
Seðlabankinn átti engin viðskipti á innlendum millibankamarkaði með
gjaldeyri í október. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu
gengisskráningar, hækkaði um 1,6% í mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans
hækkuðu um 1,1 milljarð króna í október en lækkuðu um 2,7 milljarða frá áramótum
til loka október. Í lok október námu erlend langtímalán bankans 1,1 milljarði
króna og höfðu lækkað um 4 milljarða króna frá ársbyrjun.
Heildareign
Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,3 milljörðum króna í októberlok
miðað við markaðsverð og lækkaði um 0,5 milljarða króna í mánuðinum. Lækkunin
fólst öll í sölu og innlausn ríkisvíxla. Í lok mánaðarins nam ríkisvíxlaeign
bankans 1,9 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust
um 2,2 milljarða króna í október og námu 18,1 milljarði króna í lok mánaðarins.
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 2,8 milljarða króna í mánuðinum og
voru 5,7 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 2,4 milljarða króna í október og voru neikvæðar um 9,7
milljarða króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans dróst saman um 0,2
milljarða króna í mánuðinum og nam 23,1 milljörðum króna í lok
hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla
Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 71/1999
4. nóvember 1999