logo-for-printing

09. desember 1999

Greiðslujöfnuður við útlönd janúar-september 1999

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 31,9 milljarða króna viðskiptahalli við útlönd á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 31,4 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Fjárinnstreymi mældist vera um 35,7 milljarðar króna janúar-september 1999, sem skýrist af miklum lántökum og skuldabréfaútgáfu innlendra aðila í útlöndum. Beinar fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi voru einnig umtalsverðar á þessu tímabili. Fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa mældist 19,7 milljarðar króna en heldur hægði á þeim viðskiptum á þriðja fjórðungi ársins. Aðrar erlendar eignir, innstæður, lán og viðskiptakröfur, hafa einnig aukist töluvert á þessu ári. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst á fyrstu níu mánuðum ársins um 5 milljarða króna og nam 34,7 milljörðum króna í lok september 1999.

Viðskiptahallinn var 12,4 milljarðar króna á þriðja fjórðungi 1999 samanborið við 10,5 milljarða króna halla á sama tímabili árið áður. Meiri halla í ár má rekja til óhagstæðari vöruskiptajafnaðar, einkum vegna samdráttar í útflutningi sjávarafurða. Horfur eru á að viðskiptahallinn á fjórða ársfjórðungi verði töluvert meiri en í fyrra, m.a. vegna þess að undir lok síðasta árs var stór farþegaflugvél seld úr landi. Því eru allar líkur á að viðskiptahallinn á árinu í heild verði meiri en gert var ráð fyrir í þjóðhagsáætlun í október sl. og meiri en í fyrra er hann nam 33,4 milljörðum króna.
 
Taflan að neðan sýnir samandregið yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd. Á meðfylgjandi yfirlitum eru ítarlegri upplýsingar um greiðslujöfnuðinn og erlenda stöðu þjóðarbúsins, sem hefur versnað vegna viðskiptahallans.

Greiðslujöfnuður við útlönd í milljörðum króna

Greiðslujöfnuður við útlönd

Erlend staða þjóðarbúsins

Nr. 79/1999
9. desember 1999

 

Til baka