logo-for-printing

04. ágúst 2000

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í júlí

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júlí 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í júlí og frá ársbyrjun. 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans hækkaði um 1,5 milljarða króna í júlí og nam 34,7 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 443 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).
Á millibankamarkaði með gjaldeyri nam veltan alls 94,9 milljörðum króna í júlí.  Seðlabankinn seldi gjaldeyri fyrir 7 milljarða króna í mánuðinum. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,4%.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,9 milljarða króna í júlí og námu þau 17,2 milljörðum í lok mánaðarins.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 9,7 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð og hækkuðu um 1,2 milljarða króna í mánuðinum.  Þar af eru verðbréf ríkissjóðs 6,9 milljarðar króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 0,9 milljarða króna í júlí og námu 30,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og voru 8,1 milljarður króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,4 milljarða króna í júlí og voru neikvæðar um 3,2 milljarða króna í lok mánaðarins.  Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkað um 8,4 milljarða frá áramótum.
Grunnfé bankans lækkaði um 0,4 milljarða króna í mánuðinum og nam 29,1 milljarði króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi

Nr. 19/2000
4. ágúst 2000

Til baka