Helstu liðir í efnahagsreikningi S.Í. í september 2000
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
september 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í
september og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð
því sem næst í stað í september og nam 35,2 milljörðum króna í lok mánaðarins
(jafnvirði 424 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku
krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um
1,95%.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um tæpa 3 milljarða króna í
mánuðinum og námu 14,7 milljörðum króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í
eigu bankans námu 6,8 milljörðum króna í septemberlok miðað við markaðsverð,
lækkuðu um 0,9 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í
eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir jukust um 0,9 milljarða króna í september og námu 28,6
milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust
einnig í mánuðinum og voru 9,1 milljarður króna í lok hans.
Nettóinnstæður
ríkissjóðs og ríkisstofnana í bankanum lækkuðu um 4,3 milljarða króna í
september og námu 4,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (nettókröfur bankans
voru neikvæðar um þá fjárhæð). Þar með höfðu nettóinnstæður ríkissjóðs og
ríkisstofnana lækkað um 6,7 milljarða króna frá lokum síðasta árs.
Grunnfé
bankans jókst um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 27,9 milljörðum króna í
lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og
Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan
Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaða
Seðlabankans nettó sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum
erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkið
brúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 22/2000
5. október 2000