Helstu liðir efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi
Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2000 og til samanburðar í lok desember 1999
ásamt breytingum í nóvember og frá ársbyrjun.
Gjaldeyrisforði
Seðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í nóvember og nam 34,8
milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 399 milljóna bandaríkjadala á gengi
í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar,
lækkaði í mánuðinum um 1,3%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði
fyrir 4,7 milljarða króna.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,5
milljarða króna í mánuðinum og námu þau 15,4 milljörðum í nóvember lok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 7,1 milljarði króna í nóvember lok
miðað við markaðsverð, jukust um 0,5 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð
verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna.
Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 2,6 milljarða króna í
nóvember og námu 28,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar
fjármálastofnanir jukust í mánuðinum um 2,3 milljarða króna og voru 12,2
milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 2,8 milljarða króna í nóvember og voru neikvæðar um
8,6 milljarða króna í lok mánaðarins. Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóð
og ríkisstofnanir hækkað um 3 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans
dróst saman um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 25,5 milljörðum króna í
lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og
Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Tafla yfir helstu liði efnahagsreiknings Seðlabanka Íslands
Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum
gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum
ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru
húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á
innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á
þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem
Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.
Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan
Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana
eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að
eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls
eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaða
Seðlabankans nettó sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum
erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum
innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkið
brúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í
umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.
Nr. 28/2000
6. desember 2000