logo-for-printing

25. maí 2001

Formenn bankastjórnar og bankaráðs valdir

Birgir Ísleifur Gunnarsson skipaður formaður bankastjórnar og Ólafur G. Einarsson kosinn formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands

Með vísan til 23. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands hefur forsætisráðherra skipað Birgi Ísleif Gunnarsson formann bankastjórnar Seðlabanka Íslands til sama tíma og skipun hans í embætti bankastjóra varir.

Á fyrsta fundi nýkjörins bankaráðs Seðlabanka Íslands sem haldinn var í morgun var Ólafur G. Einarsson kosinn formaður bankaráðsins og Davíð Aðalsteinsson varaformaður.

Nánari upplýsingar veitir Ingimundur Friðriksson aðstoðarbankastjóri í síma 569-9600.

 

Nr. 19/2001
25. maí 2001

 

 

Til baka