Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum
Tilkynning nr 2/2001 um dráttarvexti og
vexti af peningakröfum skv. 2. mgr. 10. gr., sbr. 4., 6. og 8. gr. og
bráðabirgðaákvæði III. í lögum um
vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
Fyrsti kafli hér að neðan um
dráttarvexti er birtur samkvæmt 6. gr. laganna og gilda
dráttarvextir sem þar eru sýndir í sex
mánuði í senn frá 1. janúar og 1.
júlí ár hvert. Annar kafli um almenna vexti er birtur
samkvæmt 4. og 8. gr. og þriðji kafli samkvæmt
bráðabirgðaákvæði III. í lögunum og
gilda vextir samkvæmt II. og III. kafla næsta
almanaksmánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist.
Vextir
sem breytast eru merktir með stjörnu (*). Innan sviga eru sýndir vextir fyrir
breytingu.
I. Dráttarvextir af
peningakröfum í krónum - Vextir alls á
ári
1. | Grunnur dráttarvaxta1 | 10,9% |
2. | Vanefndaálag2 | 12,6% |
3. | Dráttarvextir3 | 23,5% |
II. Almennir vextir
1. | Vextir óverðtryggðra lána skv. 4.gr.4 | 14,5% |
2. | Vextir verðtryggðra lána skv. 4.gr.4 | 7,8% |
3. | Vextir af skaðabótakröfum5 | 7,5% |
III. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt 6
1. | Bandaríkjadollurum | 7,0%* (7,5%) |
2. | Sterlingspundum | 8,5% |
3. | Dönskum krónum | 8,0% |
4. | Norskum krónum | 10,5% |
5. | Sænskum krónum | 7,0% |
6. | Svissneskum frönkum | 6,5% |
7. | Japönskum jenum | 5,0% |
8. | Evrum7 | 7,5% |
Um leið og tilkynning þessi öðlast gildi 1. ágúst 2001, fellur úr gildi tilkynning nr. 1/2001 dags. 18. júní 2001 um dráttarvexti og vexti af peningakröfum skv. 2. mgr. 10. gr., sbr. 4., 6. og 8. gr. og bráðabirgðaákvæði III. í lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
1
Grunnur dráttarvaxta eru
gildandi vextir algengustu skammtímalána Seðlabanka
Íslands til lánastofnana, nú ávöxtun í
endurhverfum verðbréfakaupum Seðlabankans.
2
Vanefndaálag er ellefu hundraðshlutar, nema um annað sé
samið skv. 2. mgr. 6. gr. laganna. Seðlabankanum er þó
heimilt að ákveða annað vanefndaálag að
lágmarki sjö hundraðshlutar og að hámarki
fimmtán hundraðshlutar.
3
Dráttarvextir eru samtala grunns
dráttarvaxta og vanefndaálags. Seðlabankinn skal birta
dráttarvexti eigi skemur en viku fyrir gildistökudaga
dráttarvaxta sem eru 1. janúar og 1. júlí ár
hvert.
4 Almenna vexti skv. 3. gr. laganna skal því
aðeins greiða af peningakröfu að það leiði af
samningi, venju eða lögum. Þegar hundraðshluti þeirra
eða vaxtaviðmiðun er að öðru leyti ekki tiltekin, skulu
vextir vera á hverjum tíma jafnháir vöxtum sem
Seðlabanki Íslands ákveður með hliðsjón af
lægstu vöxtum á nýjum almennum
óverðtryggðum útlánum hjá
lánastofnunum og birtir skv. 10. gr. laganna. Þar sem um
verðtryggða kröfu er að ræða skulu vextir vera
jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður með
hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum
verðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og
birtir skv. 10. gr. laganna.
Í
bráðabirgðaákvæði I. í lögum nr.
38/2001 segir: "Nú segir í lánssamningi í
íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga
þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir
í samræmi við vegið meðaltal
ársávöxtunar á nýjum almennum
útlánum hjá viðskiptabönkum og
sparisjóðum, meðalútlánsvexti viðskiptabanka og
sparisjóða eða meðalútlánsvexti sem
Seðlabanki Íslands birtir, eða vísað er með
öðrum almennum hætti til vaxta á markaði, og skulu
þá vextir af þessum peningakröfum, eftir gildistöku
laganna, vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að
viðbættum 3,5% þegar um óverðtryggða
peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv.
2. málsl. 4. gr. að viðbættum 2,5% þegar um
verðtryggða peningakröfu er að ræða.
Nú segir í lánssamningi
í íslenskum krónum, gerðum fyrir gildistöku laga
þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir
í samræmi við hæstu lögleyfðu vexti á
hverjum tíma, hæstu vexti á markaðnum eða
vísað er með öðrum almennum hætti til hæstu
vaxta á markaði og skulu þá vextir af þessum
peningakröfum eftir gildistöku laganna vera jafnháir
vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 4,5%,
þegar um óverðtryggða peningakröfu er að
ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr.
að viðbættum 3,5% þegar um verðtryggða
peningakröfu er að ræða."
5 Vextir af
kröfum um skaðabætur, sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna skulu á
hverjum tíma vera jafnháir tveimur þriðju hlutum vaxta
sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1.
málslið 4. gr. laganna.
6
Í bráðabirgðaákvæði III. í lögum nr. 38/2001 segir: "Nú
segir í lánssamningi í erlendum gjaldmiðli, gerðum fyrir gildistöku laga
þessara, að við vanskil reiknist hæstu lögleyfðu dráttarvextir eins og þeir eru
á hverjum tíma, dráttarvextir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands eða
dráttarvextir samkvæmt vaxtalögum, eða vísað er með öðrum hætti til dráttarvaxta
sem Seðlabankinn ákvað skv. 11. gr. laga nr. 25/1987, og skulu þá dráttarvextir
þessir vera ákvarðaðir með sama hætti næstu fimm árin eftir gildistöku laga
þessara, en að þeim tíma loknum skulu þeir vera jafnháir þeim dráttarvöxtum í
hlutaðeigandi gjaldmiðli sem síðast voru auglýstir af Seðlabankanum í
Lögbirtingablaði fimm árum eftir gildistöku laganna."
7 Sömu vextir gilda af peningakröfum í
myntum aðildarlanda myntbandalags Evrópu (EMU) og í
evrum.