Helstu liðir í efnahag Seðlabanka Íslands
Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 1,6 milljarða króna í júlí og nam 34,2 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 342 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 2,5% í mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 28,3 milljörðum króna í júlílok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,8 milljarða króna í júlí og námu 40,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig lítillega í mánuðinum og voru 23,7 milljarðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 4,8 milljarða króna í júlí og voru neikvæðar um 8,7 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 8,7 milljörðum króna.
Grunnfé bankans hækkaði lítillega í júlímánuði og nam það 30,1 milljarði króna í lok hans.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna | ||||
Staða í lok tímabils | Hreyfingar 2001 | |||
Desember 2000 | Júlí 2001 | Frá áramótum | Í júlí | |
Eignaliðir | ||||
Gjaldeyrisforði | 34.285 | 34.212 | -73 | -1.623 |
Markaðsskráð verðbréf | 6.546 | 5.049 | -1.497 | 33 |
Ríkissjóðs | 3.682 | 2.095 | -1.587 | 17 |
Annarra | 2.865 | 2.954 | 89 | 17 |
Kröfur á innlánsstofnanir | 38.978 | 40.520 | 1.543 | -1.834 |
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir | 13.074 | 23.733 | 10.659 | -135 |
Skuldaliðir | ||||
Erlendar skuldir til skamms tíma | 15.763 | 28.282 | 12.519 | -741 |
Seðlar og mynt | 8.672 | 9.052 | 380 | 118 |
Almennar innstæður innlánsstofnana | 2.495 | 2.412 | -82 | 513 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 21.249 | 18.591 | -2.658 | -564 |
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana | 745 | 434 | -311 | -692 |
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana | 759 | 4.267 | 3.508 | 2.291 |
Liðir til skýringar | ||||
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó | 18.522 | 5.930 | -12.592 | -882 |
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó | -12.119 | -8.726 | 3.393 | 4.815 |
Kröfur á aðra, brúttó | 52.207 | 64.341 | 12.134 | -1.983 |
Grunnfé | 32.416 | 30.056 | -2.360 | 68 |
Skýringar:
Gjaldeyrisforði
sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs,
ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð
verðbréf annarra eru húsbréf og
húsnæðisbréf. Kröfur á
innlánsstofnanir eru brúttókröfur
bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á
aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur
bankans á þessar stofnanir. Erlendar
skuldir til skamms tíma sýna
skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja
gjaldeyrisforðann. Seðlar og
mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar
í umferð utan Seðlabanka. Almennar
innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í
Seðlabankanum og bundnar innstæður
innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum
í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir
til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum
erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara
aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi
innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans
en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í
Seðlabankanum.