Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum
Fyrsti kafli hér að neðan um dráttarvexti er birtur
samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og
verðtryggingu, og gilda dráttarvextir sem þar eru sýndir í sex mánuði í senn frá
1. janúar og 1. júlí ár hvert. Annar kafli um almenna vexti er birtur
samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 4. og 8. gr. sömu laga og þriðji kafli
samkvæmt bráðabirgðaákvæði III í sömu lögum og gilda vextir samkvæmt II.
og III. kafla næsta almanaksmánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist.
Vextir sem breytast eru merktir með stjörnu (*). Innan
sviga eru sýndir vextir fyrir breytingu.
I. Dráttarvextir af peningakröfum í krónum - Vextir alls á ári, frá og með 1. ágúst 2002
1. | Grunnur dráttarvaxta1 | 8,8% |
2. | Vanefndaálag2 | 11,7% |
3. | Dráttarvextir3 | 20,5% |
II. Almennir vextir
1. | Vextir óverðtryggðra lána skv. 4.gr.4 | 12,0% |
2. | Vextir verðtryggðra lána skv. 4.gr.4 | 7,7% |
3. | Vextir af skaðabótakröfum5 | 8,0% |
III. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt 6
1. | Bandaríkjadollurum | 5,5% |
2. | Sterlingspundum | 7,5% |
3. | Dönskum krónum | 7,0% |
4. | Norskum krónum | 10,0% |
5. | Sænskum krónum | 7,0% |
6. | Svissneskum frönkum | 5,5% |
7. | Japönskum jenum | 5,0% |
8. | Evrum7 | 6,5% |
Um leið og tilkynning þessi öðlast gildi 1. ágúst 2002, fellur úr gildi tilkynning nr. 6/2002 dags. 11. júní 2002 um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Reykjavík, 19. júlí 2002.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
1 Grunnur dráttarvaxta eru gildandi vextir
algengustu skammtímalána Seðlabanka Íslands til lánastofnana, nú ávöxtun í
endurhverfum verðbréfakaupum Seðlabankans.
2
Vanefndaálag er ellefu hundraðshlutar, nema um annað sé samið skv. 2. mgr. 6.
gr. laganna. Seðlabankanum er þó heimilt að ákveða annað vanefndaálag að
lágmarki sjö hundraðshlutar og að hámarki fimmtán
hundraðshlutar.
3 Dráttarvextir eru samtala grunns
dráttarvaxta og vanefndaálags. Seðlabankinn skal birta dráttarvexti eigi skemur
en viku fyrir gildistökudaga dráttarvaxta sem eru 1. janúar og 1. júlí ár
hvert.
4 Almenna vexti skv. 3. gr. laganna skal
því aðeins greiða af peningakröfu að það leiði af samningi, venju eða lögum.
Þegar hundraðshluti þeirra eða vaxtaviðmiðun er að öðru leyti ekki tiltekin,
skulu vextir vera á hverjum tíma jafnháir vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður
með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum útlánum hjá
lánastofnunum og birtir skv. 10. gr. laganna. Þar sem um verðtryggða kröfu er að
ræða skulu vextir vera jafnháir vöxtum sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af
lægstu vöxtum á nýjum almennum verðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum og birtir
skv. 10. gr. laganna.
Í bráðabirgðaákvæði I í lögum nr.
38/2001 segir: 'Nú segir í lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum fyrir
gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera breytilegir í
samræmi við vegið meðaltal ársávöxtunar á nýjum almennum útlánum hjá
viðskiptabönkum og sparisjóðum, meðalútlánsvexti viðskiptabanka og sparisjóða
eða meðalútlánsvexti sem Seðlabanki Íslands birtir, eða vísað er með öðrum
almennum hætti til vaxta á markaði, og skulu þá vextir af þessum peningakröfum,
eftir gildistöku laganna, vera jafnháir vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að
viðbættum 3,5% þegar um óverðtryggða peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum
skv. 2. málsl. 4. gr. að viðbættum 2,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að
ræða.
Nú segir í lánssamningi í íslenskum krónum, gerðum
fyrir gildistöku laga þessara, að vextir fram að gjalddaga skuli vera
breytilegir í samræmi við hæstu lögleyfðu vexti á hverjum tíma, hæstu vexti á
markaðnum eða vísað er með öðrum almennum hætti til hæstu vaxta á markaði og
skulu þá vextir af þessum peningakröfum eftir gildistöku laganna vera jafnháir
vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. að viðbættum 4,5%, þegar um óverðtryggða
peningakröfu er að ræða og jafnháir vöxtum skv. 2. málsl. 4. gr. að viðbættum
3,5% þegar um verðtryggða peningakröfu er að ræða.'
5
Vextir af kröfum um skaðabætur, sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna skulu á hverjum tíma
vera jafnháir tveimur þriðju hlutum vaxta sem Seðlabanki Íslands ákveður og
birtir skv. 1. málslið 4. gr. laganna.
6 Í
bráðabirgðaákvæði III í lögum nr. 38/2001 segir: 'Nú segir í lánssamningi í
erlendum gjaldmiðli, gerðum fyrir gildistöku laga þessara, að við vanskil
reiknist hæstu lögleyfðu dráttarvextir eins og þeir eru á hverjum tíma,
dráttarvextir samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands eða dráttarvextir samkvæmt
vaxtalögum, eða vísað er með öðrum hætti til dráttarvaxta sem Seðlabankinn ákvað
skv. 11. gr. laga nr. 25/1987, og skulu þá dráttarvextir þessir vera ákvarðaðir
með sama hætti næstu fimm árin eftir gildistöku laga þessara, en að þeim tíma
loknum skulu þeir vera jafnháir þeim dráttarvöxtum í hlutaðeigandi gjaldmiðli
sem síðast voru auglýstir af Seðlabankanum í Lögbirtingablaði fimm árum eftir
gildistöku laganna.'
7 Sömu vextir gilda af
peningakröfum í myntum aðildarlanda myntbandalags Evrópu (EMU) og í
evrum.
Nr. 7/2002