Endurhverf verðbréfakaup fyrir 58,7 milljarða króna.
Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 23. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 8,5%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 58,7 milljarðar króna en á innlausn voru 40,4 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 30. júlí n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.
Stöplarit yfir endurhverf viðskipti
Nr. 30/2002
23. júlí 2002