Endurhverf verðbréfakaup fyrir 25,6 milljarða króna
Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 13. ágúst. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 7,9%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 25,6 milljarðar króna en á innlausn voru 26,9 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 20. ágúst n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.
Stöplarit yfir endurhverf viðskipti
Nr. 33 /2002
13. ágúst 2002