Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans
Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans var haldinn um helgina
í Washington. Jafnframt var haldinn haustfundur Fjárhagsnefndar sjóðsins
(International Monetary and Financial Committee). Í nefndinni sitja 24 fulltrúar
sem eru ráðherrar eða seðlabankastjórar þeirra ríkja sem gegna formennsku í
einstökum kjördæmum sjóðsins. Formaður nefndarinnar er Gordon Brown,
fjármálaráðherra Bretlands. Ísland fer með formennsku í kjördæmi Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja um þessar mundir. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, er fulltrúi
kjördæmisins í nefndinni og gerði grein fyrir sameiginlegri afstöðu ríkjanna til
viðfangsefna fundarins.
Í ræðu sinni fjallaði Geir H. Haarde um þróun og
horfur í heimsbúskapnum. Hann lagði sérstaka áherslu á mikilvægi frjálsra
viðskipta og að skilvirkt stjórnarfar væri lykilatriði í framþróun ríkja. Í
umfjöllun um stefnumál Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lagði fjármálaráðherra áherslu
á mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða til að koma í veg fyrir fjármálakreppur.
Fjármálaráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld sýni aðhald í
ríkisrekstri. Einnig áréttaði hann nauðsyn þess að stefna og verklag
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins væru gagnsæ og aðgengileg almenningi og fagnaði
árangri sem náðst hefur á því sviði.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kynnti í
síðustu viku nýja efnahagsspá þar sem gert er ráð fyrir minni hagvexti en fyrri
spár gáfu til kynna. Á ársfundinum var sérstök áhersla lögð á leiðir til að
komast hjá fjármálakreppum og aðgerðir til að vinna að úrlausn þeirra. Á
fundinum voru þróunarmál rædd, en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn
hafa í samvinnu við aðrar alþjóðastofnanir lagt aukna áherslu á þennan
málaflokk. Þá var fjallað um áætlun til að sporna gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka. Loks voru rædd ýmis mál sem snúa að starfsemi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Ræða Geirs H. Haarde fjármálaráðherra er birt í heild sinni
á vefsíðum fjármálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands ásamt
sameiginlegri fréttatilkynningu fundarins.
Nr. 34/2002
30. september 2002