logo-for-printing

05. nóvember 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 25,9 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 5. nóvember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 6,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 25,9 milljarðar króna en á innlausn voru 28,7 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 12. nóvember n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664

Stöplarit yfir endurhverf viðskipti

 

Nr.45/2002

5. nóvember 2002

 
Til baka