21. mars 2003
Ársfundur Seðlabanka Íslands 2003 og ársskýrsla fyrir árið 2002
Ársfundur Seðlabanka Íslands er haldinn í dag. Á fundinum er kynnt ársskýrsla bankans fyrir árið 2002. Fundurinn hófst kl. 16 með ávarpi Ólafs G. Einarssonar, formanns bankaráðs. Þá flytur Birgir Ísl. Gunnarsson, formaður bankastjórnar ræðu og í lokin er á dagskrá ávarp Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra.
Ársskýrsla Seðlabanka Íslands fyrir árið 2002
Ávarp formanns bankaráðs og ræða formanns bankastjórnar má finna hér á forsíðu heimasíðunnar og eins á sérstakri síðu fyrir ræður og ávörp.