Norrænir seðlabankar undirrita samkomulag um viðbrögð við fjármálaáföllum - leiðrétting
Á fundi í Stykkishólmi 11. júní 2003 undirrituðu bankastjórar seðlabanka Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar samkomulag (e. Memorandum of Understanding) um viðbrögð við fjármálaáföllum. Samkomulagið á við þegar alvarleg vandamál steðja að banka með höfuðstöðvar í einu Norðurlandanna og jafnframt með starfsstöð í öðru norrænu ríki.
Reynslan af erfiðleikum í bankastarfsemi í sumum Norðurlandanna í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar leiddi í ljós þörfina á því að seðlabankar bregðist skjótt við þegar áföll verða í bankastarfsemi. Á síðustu árum hafa æ fleiri bankar fært starfsemi sína til annarra landa en heimalandsins ' þar á meðal nokkrir norrænir bankar ' og er því nauðsynlegt að norrænu seðlabankarnir í sameiningu greini, ræði og bregðist við fjármálaáföllum.
Samkomulagið á við um áföll banka sem hefur höfuðstöðvar í einu Norðurlandanna og jafnframt starfsstöð í að minnsta kosti einu öðru norrænu ríki. Samkomulagið á einvörðungu við um samvinnuna á milli seðlabankanna og hefur ekki áhrif á aðra alþjóðlega samninga, svo sem samning á milli seðlabanka og bankaeftirlitsstofnana innan evrópska seðlabankakerfisins (ESCB) um viðbrögð við áföllum. Í samkomulaginu er lögð áhersla á nána og viðvarandi samvinnu á milli seðlabanka og fjármálaeftirlita, einkum þó þegar fjármálaáföll ríða yfir.
Norræna samkomulagið beinist að hagnýtum úrlausnarefnum. Það kveður á um að hver og einn seðlabankanna geti boðað til fundar í 'starfshópi um viðbrögð við fjármálaáföllum' sem skipaður er háttsettum fulltrúum bankanna. Jafnframt er í samkomulaginu vísað til þess hvaða seðlabanki skuli hafa forystuhlutverk á hendi, hvaða samskipti skulu eiga sér stað við fjármálaeftirlit, viðeigandi ráðuneyti, bankastjóra og aðra aðila. Samkomulagið tilgreinir þær upplýsingar sem skal afla og greina frá þeim banka sem lent hefur í erfiðleikum. Að lokum eru í samkomulaginu leiðbeiningar um samræmingu á upplýsingum sem seðlabankarnir veita utanaðkomandi aðilum.
Þar sem hver fjármálakreppa hefur sín sérkenni er ekki1 tilgreint í samkomulaginu til
hvaða aðgerða skuli grípa til þess að leysa þau vandamál sem kunna að hafa
skapast. Þar sem hér er um samvinnu á milli seðlabanka að ræða snúast þó
meginatriði samkomulagsins um leiðir til þess að tryggja lánastofnunum laust
fé.
Samkomulagið verður birt á heimasíðum seðlabankanna á næstu dögum.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísl. Gunnarsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, í síma 569-9600.
Nr. 17 /2003
12. júní 2003
1) Í þessari frétt sem birt var 12. júní 2003 féll þetta orð, 'ekki', niður.