Endurhverf verðbréfakaup fyrir 28,3 milljarða króna
Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 1. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 28,3 milljarðar króna en á innlausn voru 31,6 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 8. júlí n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9664.
Fréttin í heild með stöplariti
Nr. 27/2003
1. júlí 2003