Endurhverf verðbréfakaup fyrir 41 milljarð króna
Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 19. ágúst. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 41 milljarður króna en á innlausn voru 41,7 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 26. ágúst n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9664.
Fréttin í heild með stöplariti
Nr. 34 /2003
19. ágúst 2003