Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í
lok ágúst 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í ágúst
2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
jókst í mánuðinum um 4,5 milljarða króna og nam 41 milljarði króna í lok ágúst
(jafnvirði 512 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend
skammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námu
þau rúmlega 16 milljörðum króna.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á
innlendum millibankamarkaði fyrir 4 milljarða króna í ágúst í samræmi við áætlun
hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá í
maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar veiktist um 1,1 % í
ágústmánuði.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum
króna í ágústlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf
ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir
lækkuðu um 5,4 milljarða króna í ágúst og námu 61,5 milljörðum króna í lok
mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig og námu 7,2
milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og
ríkisstofnanir hækkuðu um 5,8 milljarða króna í ágúst og námu nettóinnstæður
ríkissjóðs 22,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans
hækkaði í ágúst um 3,2 milljarða króna og nam 41 milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla
Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal, 83KB)
Nr. 24/2003
4. september 2003