Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í nóvember 2003 og frá ársbyrjun 2003.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mánuðinum um 6,0 milljarða króna og nam 57,7 milljörðum króna í nóvemberlok (jafnvirði 776 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námu þau rúmlega 16 milljörðum króna.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 3,8 milljarða króna í nóvember í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 0,38% í nóvembermánuði.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í nóvember lok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 0,7 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2,6 milljarða króna í nóvember og námu 41,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið og námu 3,6 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 8,8 milljarða króna í nóvember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,3 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í nóvember um 4,1 milljarð króna og nam 33,3 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir
aðalbókari í síma 569-9600.
Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal
83kb)
Nr. 32/2003
4. desember 2003