Útgáfudagar Peningamála og þjóðhags- og verðbólguspár 2004
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að gefa ársfjórðungsrit sitt
Peningamál út einum mánuði seinna frá og með árinu í ár en hingað til
hefur verið gert, þ.e. í mars, júní, september og desember. Þessir útgáfumánuðir
henta betur í skipulagningu verkefna sem tengjast útgáfu Peningamála,
auk þess sem ætla má að á heildina litið henti þeir betur til þess að koma
greiningu og spám bankans á framfæri en fyrri útgáfumánuðir.
Einnig hefur
verið ákveðið, að höfðu samráði við forsætisráðuneytið, að fullbúnar þjóðhags-
og verðbólguspár verði hér eftir birtar tvisvar á ári en ekki fjórum sinnum.
Spárnar verða birtar í júní- og desemberheftum Peningamála.
Seðlabankinn mun birta spár oftar ef hann telur til þess tilefni og þá annað
hvort uppfærslur á síðustu spám eða fullgerðar spár. Í þeim heftum
Peningamála þar sem ekki verða birtar þjóðhags- og verðbólguspár verður
engu að síður birt greining á framvindu efnahagsmála, horfum eins og þær kunna
að hafa breyst frá birtingu síðustu spár og í sumum tilvikum sem fyrr segir
uppfærsla á síðustu spám. Í næsta hefti Peningamála sem gefið verður út
í mars n.k. verður birt uppfærsla á spá bankans frá nóvember sl.
Gerð
fullbúinnar þjóðhags- og verðbólguspár krefst mjög mikillar vinnu og hæpið er í
því ljósi að ávinningurinn af fjórum spám á ári sé nægur. Þá skiptir einnig máli
að mun betra jafnvægi ríkir nú í þjóðarbúskapnum en fyrst eftir að 2½% verðbólga
varð meginmarkmið peningastefnunnar í mars 2001. Því er vonast til að sveiflur í
verðbólgu verði minni en áður og af þeim sökum verði ekki nauðsynlegt að gera
eins tíðar spár. Þá má geta þess að ýmsir seðlabankar með verðbólgumarkmið sem
Seðlabanki Íslands ber sig gjarnan saman við birta spár tvisvar eða þrisvar á
ári.
Í mars- og septemberheftum Peningamála, þ.e. þeim heftum
þar sem ekki verða birtar fullbúnar þjóðhags- og verðbólguspár, verða birtar
úttektir bankans á fjármálastöðugleika.
Í samræmi við ofangreint verða
útgáfudagar Peningamála í ár eftirfarandi: 17. mars, 1. júní, 17.
september og 2. desember.
Nánari upplýsingar veita Birgir Ísleifur
Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands og Már Guðmundsson
aðalhagfræðingur bankans í síma 569-9600.
Nr. 3/2004
19. janúar 2004