logo-for-printing

04. mars 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2004

Í meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2004 og til samanburðar í lok janúar 2004 og í lok desember 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í febrúar um 0,9 milljarða króna og nam 57,3 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 822 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,4 milljarða króna í febrúar í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í nóvemberhefti Peningamála 2003.

Gengi íslensku krónunnar veiktist um 0,3% í febrúar.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 5,1 milljarð króna í febrúar og námu 36,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 2,8 milljarða króna og námu 7,5 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í febrúarlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 0,7 milljörðum króna.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 1 milljarð króna í febrúar og námu 29 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í febrúar um 1,4 milljarða króna og nam 31 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 104kb.)

Nr. 7/2004
4. mars 2004

Til baka