Endurskoðun á gengisskráningarvog krónunnar
Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvog krónunnar í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2003. Vogin var síðast endurskoðuð í júlí 2003. Meðfylgjandi tafla sýnir nýju vogina og breytingar frá fyrri vog. Nýja vogin mun mæla gengisbreytingar frá gengisskráningu föstudaginn 16. júlí 2004 og þar til næsta endurskoðun fer fram um svipað leyti að ári.
Gengisskráningarvogin er endurskoðuð árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að hún endurspegli ætíð eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vog eru að vægi evru eykst um 3,3 prósentur en vægi Bandaríkjadals minnkar um 2,9 prósentur. Vægi evrunnar hefur einkum þyngst í innflutningi vöru og þjónustu. Minna vægi Bandaríkjadals skýrist að stærstum hluta af minni vöruinnflutningi frá Bandaríkjunum. Þó drógust önnur viðskipti við Bandaríkin einnig saman á árinu 2003.
Rétt er að leggja áherslu á að hér er aðeins um tæknilega breytingu að ræða sem varðar útreikninga á breytingum á gengi krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Breytingin hefur engin áhrif á stefnu bankans í peningamálum.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn G. Pétursson, staðgengill aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands, í síma 569-9600.
Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 84 KB)
Nr. 21/2004
14. júlí 2004