logo-for-printing

17. september 2004

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur frá og með 21. september n.k. í 6,75%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 1,45 prósentur síðan í maí sl. Í ársfjórðungsritinu Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni í dag eru færð rök fyrir nauðsyn þess að hækka vexti nú.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9615.

 

Nr. 26/2004
17. september 2004

Til baka