Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans 2004
Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans og tengdir
fundir fóru fram dagana 2. til 5. október í Washington. Laugardaginn 2. október
var haldinn haustfundur í fjárhagsnefnd sjóðsins (International Monetary
and Financial Committee, IMFC). Formennska í kjördæmi Norðurlanda
og Eystrasaltslanda er í höndum Noregs frá 2004 til 2005. Fjármálaráðherra
Noregs, Per-Kristian Foss er því fulltrúi kjördæmisins í fjárhagsnefndinni og
talar hann fyrir hönd þess. Á sunnudeginum 3. október var haldinn ársfundur
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans.
Seðlabankastjóri Finnlands,
Erkki Liikanen, flytur ársfundarræðu kjördæmisins að þessu sinni. Ræður
kjördæmisins eru birtar í heild sinni á vefsíðum Seðlabanka Íslands og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Stefnuræða kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (pdf-skjal 27kb)
Stefnuyfirlýsing Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 2004 (pdf-skjal 41kb)