Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2004
Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka
Íslands í lok nóvember 2004 og til samanburðar í lok október 2004 og í lok
desember 2003.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum
millibankamarkaði fyrir 4,9 milljarða króna í nóvember sl. í samræmi við áður
kynnta áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína.
Gjaldeyrisforði bankans jókst um 1 milljarð króna í mánuðinum og nam 67,1
milljarði króna í lok mánaðarins sem jafngildir 1.035 milljónum Bandaríkjadala
miðað við gengi í mánaðarlok. Breytingar á stærð forðans skýrast af
gjaldeyriskaupum, lánahreyfingum ríkissjóðs og gengisbreytingum. Gengi íslensku
krónunnar styrktist um 3% í nóvember.
Kröfur Seðlabankans á
innlánsstofnanir hækkuðu um 12,3 milljarða króna í nóvember og námu 32,9
milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir minnkuðu
aftur á móti um 1,5 milljarða króna og námu 9,7 milljörðum króna í
mánaðarlok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,1 milljörðum
króna í nóvemberlok miðað við markaðsverð.
Skuldir Seðlabankans við
innlánsstofnanir minnkuðu um 3 milljarða króna í mánuðinum og námu 24,5
milljörðum króna í nóvemberlok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir jukust um
24,5 milljarða króna í mánuðinum.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og
ríkisstofnana minnkuðu um 7,3 milljarða króna og námu 9,8 milljörðum króna í lok
nóvember. Þar af var greitt upp skuldabréf ásamt vöxtum af því að fjárhæð
5,8 milljörðum króna.
Grunnfé bankans lækkaði í nóvember um 2,9 milljarða
króna og nam 35,7 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar
veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma
569-9600.
Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 44 kb)
Nr. 35/2004
6. desember 2004