07. júní 2005
Málstofa um hagsveiflu í opinberum fjármálum
Í dag kl. 15.00 verður málstofa í Seðlabanka Íslands. Þá flytur Markús Möller, hagfræðingur í Seðlabanka Íslands, fyrirlestur sem ber heitið: „Hagsveiflan í opinberum fjármálum.“ Málstofan fer fram í fundarsalnum Sölvhóli í Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1. Gengið er inn frá Arnarhóli.Sjá hér nánari upplýsingar um málstofur í Seðlabanka Íslands.