13. júní 2005
Nýjar hagtölur á vefnum
Í dag voru birtar í Hagtölum Seðlabanka Íslands hér á vef bankans tölur um reikninga lánakerfisins fyrir fyrsta ársfjórðung 2005, tölur um greiðslumiðlun, veltu á millibankamarkaði með krónur, efnahagsyfirlit Seðlabankans og ávöxtun ríkisskuldabréfa á eftirmarkaði miðað við maímánuð. Að auki voru birtar tölur um raungengi og ýmsar vaxtaraðir eru uppfærðar.
Sjá nánari upplýsingar um þetta á sérstöku svæði hér á vefnum:
Hagtölur