Auglýst eftir hagfræðingi til starfa í Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf hagfræðings á hagfræðisviði. Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu ársfjórðungsritsins Peningamála og ensku útgáfu þess Monetary Bulletin.
Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:
· Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði.
· Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans og framþróun líkana til spágerðar.
· Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðarsviðum Seðlabankans.
Áskilið er a.m.k. meistarapróf í hagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.
Upplýsingar um starfið veitir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur, í síma 5699600. Umsóknum skal skilað fyrir 22. febrúar 2007 til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.