Moody´s staðfestir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands
Hinn 14. febrúar staðfesti matsfyrirtækið Moody´s Investors Service lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í reglubundnu mati sínu (e. credit opinion). Staðfestar voru einkunnirnar Aaa fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur eru stöðugar.
Lesendum er bent á að matið var endurútgefið hinn 15. febrúar, þar sem eftirfarandi setningu var breytt:
„The Central Bank of Iceland has been aggressively tightening monetary conditions, but the depreciation of the ISK since the beginning of the year continues to fuel inflation way above target.“
Í nýjustu útgáfu matsins er hún:
„The Central Bank of Iceland has been aggressively tightening monetary conditions, but the depreciation of the ISK in the beginning of 2006 has fueled inflation way above target.“