04. september 2007
Breytingar á lánaumsýslu ríkissjóðs
Breytingar hafa orðið á lánaumsýslu ríkissjóðs sem fela í sér að Seðlabanki Íslands mun annast útgáfu innlendra markaðsverðbréfa ríkissjóðs sem Lánasýsla ríkisins annast nú, en bankinn annast nú þegar umsýslu erlendra lána ríkissjóðs. Samningur þess efnis var undirritaður í dag og tekur gildi frá 1. október n.k.Nánari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins.