26. nóvember 2007
Málstofa um viðskiptahalla
Málstofa verður haldin þriðjudaginn 27. nóvember kl. 15:00 í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli. Málshefjandi er Rósa B. Sveinsdóttir, hagfræðingur á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands og ber erindi hennar heitið „Hegðun viðskiptahalla í jafnvægislíkani með mörgum kynslóðum“.