Laust starf: Netstjóri á upplýsingasviði Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf netstjóra á upplýsingasviði bankans. Upplýsingasvið annast öflun, skráningu og úrvinnslu tölfræðilegra gagna sem Seðlabankinn safnar vegna starfsemi sinnar og rekur jafnframt tölvukerfi bankans og gagnagrunna. Sviðið skiptist í fjórar deildir, þ.e. upplýsingatækni, rekstur og viðhald á Fame-gagnagrunni bankans, gagnasöfnun og skráningu, úrvinnslu gagna og miðlun.
Lausa starfið er í upplýsingatæknideild sem annast þróun, rekstur og viðhald á tölvukerfi og hugbúnaði bankans.
Starfssvið netstjóra:
· Umsjón, þróun og daglegur rekstur á tölvuneti bankans og tengdum búnaði
· Samskipti við ytri þjónustuaðila
· Innleiðing nýrra kerfa, kennsla og notendaaðstoð
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærileg menntun er kostur
· Reynsla af kerfisstjórnun í Microsoft-umhverfi – MCSA, MCSE eða sambærileg gráða er kostur
· Þekking á Cisco-búnaði – CCNA gráða er kostur
· Þekking á verkefnastjórnun
· Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi
· Færni í mannlegum samskiptum
Seðlabankinn leitar að starfsmanni með metnað, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og áhuga á að takast á við krefjandi verkefni. Bankinn býður upp á mjög gott starfsumhverfi og góða möguleika á endurmenntun/símenntun.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Arnar Freyr Guðmundsson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar, í síma 569-9600. Umsóknum skal skilað fyrir 20. desember 2007 til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. Netfang: ingvar.a.sigfusson@sedlabanki.is