25. apríl 2008
Trúverðugleiki peningastefnunnar og baráttan við verðbólguna
Þórarinn G. Pétursson, staðgengill aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands og forstöðumaður rannsóknar- og spádeildar hagfræðisviðs bankans, flutti í vikunni fyrirlestur um trúverðugleika peningastefnunnar og baráttuna við verðbólguna. Þar fjallar hann m.a. um reynslu annarra landa og forgangsverkefni peningastefnunnar hér á landi í dag.
Þórarinn flutti fyrirlesturinn hjá Rótarýfélagi Reykjavíkur 23. apríl 2008 og eru helstu atriði hans aðgengileg í meðfylgjandi skjali:
Helstu atriði í fyrirlestri Þórarins eru aðgengileg hér í PowerPoint-skjali.