20. ágúst 2008
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns opið á Menningarnótt
Í tilefni af Menningarnótt í Reykjavík laugardaginn 23. ágúst 2008 verður Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns á Kalkofnsvegi 1 opið frá kl. 14:00 til 17:00.
Í myntsafninu er íslensk mynt og seðlar og erlendur gjaldmiðill frá fyrri öldum. Þar er einnig kynningarefni á margmiðlunarformi um starfsemi Seðlabanka Íslands og skylda starfsemi. Kaffi á könnunni.
Aðgangur að safninu er um aðaldyr bankans frá Arnarhóli.
Dagskrá Menningarnætur er að finna á: www.menningarnott.is