logo-for-printing

21. október 2009

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2009

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Engin breyting er á vöxtum frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. október sl. Frá 1. nóvember nk. verða vextir því eftirfarandi. Vextir verðtryggðra lána 4,9%. Vextir af óverðtryggðum lánum 10,5% og vextir af skaðabótakröfum 7,0%.

Dráttarvextir eru einnig óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun og verða 19% fyrir tímabilið 1. nóvember til 30. nóvember 2009.

Tilkynning um dráttarvexti nr. 9/2009 

Til baka