Málstofa í Seðlabanka Íslands
Málstofa verður haldin í Seðlabanka Íslands kl. 15:00 í dag um svokallað DSGE-líkan fyrir hagkerfið á Íslandi. Frummælandi er Martin Seneca, hagfræðingur á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands.
Erindi Martins verður á ensku.
DSGE stendur fyrir „dynamic stochastic general equilibrium“ og mætti því þýða heiti líkansins lauslega sem kvikt, tilviljanakennt, almennt jafnvægislíkan (eða kvikt, almennt jafnvægislíkan með óvissu).
Málstofan verður haldin í Sölvhóli, fundarsal Seðlabanka Íslands. Gengið er inn frá Arnarhóli - og hefst málstofan klukkan 15:00 eins og áður kom fram.
Ágrip:
This seminar presents a dynamic stochastic general equilibrium (DSGE) model developed at the Central Bank of Iceland.
The model is estimated on Icelandic data using a Bayesian approach and is to be used for policy analysis at the Central Bank.