Seðlabankastjóri á opnum nefndarfundi Alþingis
Már Guðmundsson seðlabankastjóri verður á opnum fundi þriggja nefnda Alþingis í dag kl. 10:00. Þá halda efnahags- og skattanefnd, fjárlaganefnd og viðskiptanefnd fund um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Á fundinum munu seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, og Rannveig Sigurðardóttir, ritari peningastefnunefndar, gera grein fyrir störfum peningastefnunefndar undangengið ár og svara fyrirspurnum.
Þessi opni fundur er liður í reglulegri upplýsingagjöf Seðlabankans til Alþingis, en samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands skal Alþingi tvisvar á ári gerð grein fyrir störfum peningastefnunefndar.
Þessi opni fundur verður haldinn í húsnæði nefndarsviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi á meðan húsrúm leyfir.
Fundurinn verður jafnframt aðgengilegur í beinni útsendingu á vef Alþingis.
Sjá hér tengla fyrir beinar útsendingar frá Alþingi
Sjá hér skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis:
Skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis