Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa íslenskar krónur
Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum í íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðið er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011.
Viðskiptavökum á millibankamarkaði með gjaldeyri er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin. Seðlabankinn býðst til að kaupa 15 ma.kr gegn greiðslu í evrum. Tilboðum skal skilað fyrir 7. júní 2011. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðsins er að finna í útboðsskilmálum. Samhliða útboðinu mun Seðlabankinn, fyrir hönd ríkisjóðs, bjóðast til að kaupa til baka krónuskuldabréf ríkissjóðs sem falla á gjalddaga fyrir lok maí 2013 (sjá frétt frá Lánamálum ríkisins, samanber viðhengi).
Markmið þessara fyrstu aðgerða í fyrri áfanga áætlunarinnar um losun gjaldeyrishafta, er að stuðla að því að fjárfestar geti selt krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Lausafjárstaða bankanna er nægilega sterk til þess að standast tilfærslur á þeirri krónufjárhæð sem Seðlabankinn býðst til að kaupa og með ofangreindum endurkaupum á ríkisbréfum er dregið úr mögulegum hliðaráhrifum viðskiptanna á skuldabréfamarkað.
Viðhengi:
Frétt frá Lánamálum ríkisins um endurkaup á skuldabréfum ríkissjóðs
Áætlun Seðlabanka Íslands um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands í síma 5699600.
Nr. 13/2011
23. maí 2011