12. júlí 2011
Seðlabankastjóri með innlegg í pallborðsumræður á alþjóðlegri ráðstefnu í Aix-en-Provence í Frakklandi
Már Guðmundsson seðlabankastjóri var nú um helgina með innlegg í pallborðsumræður á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var í Aix-en-Provence í Frakklandi. Pallborðsumræðurnar sem seðlabankastjóri tók þátt í báru heitið: “World Finance: States must innovate” og snerust um umbætur á regluverki á fjármálamarkaði.
Innlegg hans fjallaði um misfellur og áhættu í bankastarfsemi yfir landamærin.
Hér má sjá innlegg seðlabankastjóra: Innlegg seðlabankastjóra í pallborðsumræður í Aix 9. júlí (pdf)