Yfirlýsing peningastefnunefndar 16. maí 2012
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur.
Þjóðhagsspáin sem birtist í Peningamálum í dag staðfestir að batinn sem hófst síðla árs 2010 heldur áfram og nær til flestra sviða efnahagslífsins. Þróttur innlendrar eftirspurnar er töluverður og sjást skýr merki um bata á vinnu- og fasteignamarkaði. Fjármálaleg skilyrði einkageirans halda áfram að batna.
Horfur eru á ívið meiri hagvexti en í febrúarspá Seðlabankans. Verðbólga hefur hins vegar verið meiri en spáð var í febrúar og verðbólguhorfur hafa versnað, að nokkru leyti vegna þess að gengi krónunnar hefur verið veikara. Að öðru óbreyttu eru horfur á að verðbólga verði lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið en spáð var í febrúar, einkum haldist gengi krónunnar áfram lágt.
Eftir því sem efnahagsbatanum vindur frekar fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að halda áfram að draga úr slaka peningastefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Dragi ekki úr verðbólgu á næstu mánuðum verður að óbreyttu ekki komist hjá frekari hækkun nafnvaxta svo að tryggja megi að verðbólga leiti á ný í markmið.
Vextir Seðlabanka Íslands verða eftir ákvörðunina sem hér segir:
Daglánavextir |
6,50% |
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga |
5,50% |
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum |
5,25% |
Innlánsvextir |
4,50% |
Nr. 17/2012
16. maí 2012
Skjal: Vextir við Seðlabanka Íslands 16. maí 2012