![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
27. júlí 2012
Fjármálatíðindi og ársskýrslur Seðlabankans á tölvutæku formi
![Brot úr grein sem birtist í Fjármálatíðindum á árinu 1968. Brot úr grein sem birtist í Fjármálatíðindum á árinu 1968.](/library/Ljosmyndir_ISL/Utgefid_efni_ISL/frett_um_fjarmalatidindi.png?proc=AdalmyndFrett)
Nýverið lauk vinnu við að færa texta Fjármálatíðinda á tölvutækt form. Fjármálatíðindi voru vettvangur fyrir vandaðar fræðilegar greinar um hagfræðitengd málefni og rannsóknir á íslenskum efnahagsmálum. Seðlabankinn hefur nú fært öll hefti Fjármálatíðinda frá því að þau voru fyrst gefin út árið 1954 yfir á stafrænt form.
Samtímis voru ársskýrslur Seðlabanka Íslands og fyrirrennara hans Landsbanka Íslands, Seðlabanka færðar á stafrænt form frá árinu 1957. Í ársskýrslunum er að finna samantektir um efnahagsmál liðinna ára og upplýsingar um rekstur og efnahag Seðlabankans ásamt gögnum um bankakerfið.
Hægt er að leita í texta allra ritanna og hlaða niður PDF skjölum. Fjármálatíðindi má finna hér
Ársskýrslur Seðlabankans er að finna hér.
Myndin sýnir brot úr grein sem birtist í Fjármálatíðindum á árinu 1968.