logo-for-printing

22. mars 2013

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 3/2013

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2013 dags 15. febrúar sl.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2013.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir tímabilið 1. – 30. apríl 2013;

   • Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)
   • Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
   • Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 3/2013 (pdf)

Til baka