26. júlí 2013
Matsfyrirtækið S&P: Horfum breytt í neikvæðar vegna áhættu sem tengist ríkisfjármálum
Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn fyrir skuldbindingar Ríkissjóðs Íslands. Lánshæfiseinkunn fyrir erlendar og innlendar skuldbindingar er BBB-/A-3. Horfum var breytt úr stöðugum í neikvæðar vegna áhættu sem tengist ríkisfjármálum.Fréttatilkynningu fyrirtækisins má nálgast hér (pdf)