21. ágúst 2013
Kynningarefni vegna Peningamála og vaxtaákvörðunar
Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur gerði grein fyrir efni þriðja heftis Peningamála 2013, ásamt yfirlýsingu peningastefnunefndar, á kynningarfundi sem haldinn var í Seðlabanka Íslands 21. ágúst 2013 að viðstöddum fulltrúum fjölmiðla og sérfræðingum fjármálafyrirtækja.
Glærur með kynningarefninu eru nú aðgengilegar hér á pdf-formi: Kynning 21082013.pdf (pdf)